30maí

Hætt með þessa síðu

Ég ætla að byrja að bloggar á mína síðu aftur, http://hrabbabj.bloggar.is 

Kv. hrabba

30. maí 2007 klukkan 13:03
Heiða&Hrabba
Engin athugasemd
17maí

Vá hvað tíminn lýður!

Nú eru bara 10 dagar í að ég kem heim... en allavegana það er allt gott að frétta. Á sunnudaginn er ég að fara í bátsferð í kringum Möltu og til Comino og þar getur maður synnt í sjónum sem er mega blár og ég vona bara að veðrið verði geggjað:) við ætluðum að fara seinasta sunnudag en maðurinn sem átti að ná í okkur og fara með okkur að bátnum GLEYMDI OKKUR! Við vorum búnar að bíða eftir honum úti í steikjandi hita í klukkutíma! En við fengum endurgreitt og ákváðum að fara með öðru fyrirtæki:) og ég hlakka bara til!En í morgun fann ég, mér til mikillar “ánægju”, háfdauðann kakkalakka í herberginu mínu!!!:S:S ojjjojjjojj.. Guð má vita hvar hann hefur verið að þvælast og unga út eggjunum sínum:pSvo um daginn fór rafmagnið af öllu húsinu og nokkrum húsum í kring og götuljósunum, það var frekar dimmt og skary:p en bara fyndið... svo daginn eftir það var ekkert vant í eldhúskrananum.. hehe allt að verða crazy;)Hvað fannst ykkur um Eurovision? Mér fannst þetta nú pínu gruggugt:p ég meina þetta var bara austur evrópa.. en það er bara mín skoðun. Ekki það að mér hafi fundist íslenska lagið eitthvað geggjað en mér fannst einum of mikið hvernig þetta var:pAllavegana bara hafiði það gott;) og ég er að setja inn myndir:D Kv. hrabba
17. maí 2007 klukkan 11:30
Heiða&Hrabba
7 athugasemdir
09maí

tími til kominn...

Jæja kannski kominn tími á blogg hjá mér:p ég veit að ég hef ekki verið sú duglegasta í þessu en Damian var í heimsókn hjá mér seinustu 3 vikur þannig að ég hef nú ekki mikið verið að fara á netið. Við erum samt búin að gera margt skemmtilegt. Þegar Heiða var hérna fórum við á Golden Bay á bananabát (og Heiða datt einusinni af), fórum að versla í Sliema, fórum í keilu og billiard og margt fleira...Þegar Heiða fór fórum við Damian aftur á Golden bay og fórum í eitthvað svaka tryllitæki, þetta var eitthvað rautt dæmi sem maður sat á og var svo dreginn eftir bát og maður hoppaði og skoppaði um allan sjóinn og ég datt einusinni af, hehe ég fór í konnís aftur á bak;) Svo fórum við í svona Aqualand, sáum páfagauka-, sæljóna- og höfrungasýningu og þvílík snilld. Sæljónasýningin var fyndnust! Hehe svo eftir það fórum við í rennibrautir og fórum í eitthvað dæmi sem er eins og klósett, maður rennir sér niður rör og kemur svo út í stóra skál og maður skolast niður um gat í botninum:) bara gaman.Svo erum við búin að vera að horfa á DVD, fara í pool og bara taka því rólega:) en nú er ég bara alein eftir hérna, Dammi minn fór í morgun og ég er strax byrjuð að sakna hans óendanlega mikið!!!! Og ef ég á að segja eins og er langar mig bara heim á morgun. Ég hef engann áhuga á að vera hérna akkurat núna.En maður verður að harka þetta af sér og vera ekki með neitt væl. Um næstu helgi er líka spáð geggjuðu veðri, 27°C og sól:) ég þarf líka að reyna að læra fyrir þetta læknapróf:p það er alveg eins gott að byrja á því;) En jæja komið nó í bili, plís veriði dugleg að kvitta og segja mér slúður frá Íslandi;) Kv. hrabba

Ps. nýjar myndir komnar inn, enyoj;)
09. maí 2007 klukkan 10:55
Heiða&Hrabba
7 athugasemdir
23apríl

Hallo

Eg er komin ut og byrjadi i skolanum i dag, mer lyst vel a thetta bara og verdur enntha meira gaman thegar eg er buin ad kynnast theim sem eg er med i bekk.
Flugid ut gekk vel, eg var reyndar mjog threytt og rosa fegin ad komast a leidarenda. Vid erum bunar ad vera rosa latar sidan eg kom, bara slappad af og horft a tv.
Vid komum med adeins meira blogg seinna
Heida

23. apríl 2007 klukkan 11:30
Heiða&Hrabba
16 athugasemdir
16apríl

Pics

Það eru komnar örfáar myndir inn;) enyoj
16. apríl 2007 klukkan 14:41
Heiða&Hrabba
13 athugasemdir
13apríl

Ladies and gentlemens

Yes hello my friends from Iceland, how are you doing?
Er eitthvað slúður frá Íslandi? kommon hver er ólétt? hver eru byrjuð saman? hvað er í gangi?

Það er ekkert mikið að frétta. Bara gott veður og gaman. Ég fæ reyndar svolitla heimþrá sérstaklega á kvöldin. Ég sakna Damma míns alveg hrikalega og þetta tekur svakalega á, ég er stundum rosalega þreytt en ég held að þetta sé alveg hryllilega gott fyrir mig og á eftir að nýtast vel. Svo hlakka ég geggjað til að fá Heidi hingað út:)
Við ætluðum að fara á boat trip í kvöld með skólanum en það var hætt við það því það er of mikill vindur.

Ef einhver veit um eitthvað gott og fljótlegt sem ég get eldað mér megið þið endilega senda mér uppskrift eða skrifa hana hérna inn;) emailið mitt er hrabba_bj@hotmail.com.

Kveðja hrabba;)
13. apríl 2007 klukkan 11:21
Heiða&Hrabba
7 athugasemdir
09apríl

sól sól skín á mig

Halló!

Það er allt gott að frétta af mér. Það er búin að vera löng helgi og það var ekkert smá erfitt að vakna til að fara í skólann í morgun! Það var samt bara frí á föstudaginn en það var mjög ljúft. Það er búið að vera magnað veður og ég er aðeins búin að brenna:S en samt ekkert alvarlega. Það er bæði strönd hérna rétt hjá þar sem ég bý en hún er ekkert sérstök. Á laugardeginum fór ég með nokkrum krökkum á aðra strönd sem heitir Goldem Bay og það var geggjað!! þar var alvöru fínn sandur og þetta var geðveikt.

Annars bara allt gott að frétta, ég ætla að drífa mig út í góða veðrið;) hafiði það gott:*

Kv. Hrabba

09. apríl 2007 klukkan 11:30
Heiða&Hrabba
6 athugasemdir
03apríl

Loksins komin til Möltu

Jæja, ég ætlaði að vera löngu búin að blogga en ég bara hef ekki haft tíma.. Fyrst þegar ég kom hingað langaði mig bara strax heim. Ég var svo GEÐVEIKT þreytt eftir ferðalagið því gat ekkert sofið. Í flugvélinni frá Íslandi ældi strákurinn við hliðina á mér þannig að mér var hálf illt í maganum eftir það og gat voða lítið sofið, svo vildi ég ekki sofa á flugvellinum því ég var hrædd um tölvuna mína og ég þurfti að bíða í 9 tíma þar svo á leiðinni frá Heathrow til Möltu gat ég ekki hallað stólbakinu niður þannig að það var mjög erfitt að sofa. Klukkan hér á Möltu var svo 02:00 þegar ég kom (00:00 á íslenskum tíma) og ég var svoooo þreytt og þetta var ekki alveg eins og ég bjóst við þannig að mig langaði bara heim. Svo átti ég engan mat og var ekki með neinn maltneskan pening og á sunnudögum eru flestar búðir lokaðar þannig að þetta var allt svo vonlaust. En herbergisfélagi minn hjálpaði mér og gaf mér mat fyrsta daginn og núna er ég búin að kynnast nokkrum stelpum og kennararnir eru mjög fínir þannig að þetta er mikið skárra:) Svo hlakka ég geggjað til þegar Heiða kemur.
Það er samt ekkert sérstaklega heitt hérna, núna er t.d. skýjað og í gær kvöldi var mikil rigning. En það á eftir að hlýna á næstu vikum:)

Annar ætlaði ég bara að láta vita að allt er í góðu og þetta verður örugglega mjög gaman:) ég reyni svo að vera dugleg að skrifa hér inn:)
03. apríl 2007 klukkan 12:49
Heiða&Hrabba
8 athugasemdir
29mars

Malta

Síðan er í vinnslu ennþá en ég byrja að blogga um leið og ég kem út:) veriði svo bara dugleg að kíkja hingað á okkur;)

Kv. hrabba
29. mars 2007 klukkan 18:21
Heiða&Hrabba
1 athugasemd

Aðalvalmynd

Atburðarteljari

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

Leit

Gagnasafn